| Norræna húsið leigir eftir föngum salarkynni sín bæði íslenskum og norrænum félögum, samtökum eða einstaklingum.
Fundarsalur hússins rúmar um 120 manns og er hentugur fyrir fundi, ráðstefnur, tónleika, kvikmyndasýningar og fleira.
Fundarherbergi fyrir minni fundi tekur 12 – 16 manns.
Ýmis konar tækjabúnaður er til reiðu: ræðupúlt, hljóðkerfi, hljóðnemar fyrir pallborð, skjávarpi, fartölva, myndbandstæki og stórt tjald, sjónvarp, myndvarpi, litskyggnuvél, segulbandstæki, flettitafla og pennatafla.
Verðskrá (pdf-skjal)
Nánari upplýsingar hjá dagskrárfulltrúa á skrifstofutíma, frá mánudögum til föstudaga frá 9 - 16, í síma 551 70 30 eða á netfangi marie@nordice.is |