Verkefnið ætti meðal annars að auka þekkingu og skilning á Norrænum listamönnum og þeirra list. Styrkþegar þurfa að skila inn skýrslu þar sem þeir gera grein fyrir ferð sinni í síðastalagi 3 mánuðum eftir að ferðinni lýkur.
Listir og menning
Lista og menningar þættinum er ætlað listamönnum, umboðsaðilum, stofnunum, félagasamtökum , framleiðendum og öðru fagfólki sem starfar á ólíkum sviðum menningarlífsins.
Megin markmið er þroski og þróun. Með því er átt við; nýjar túlkanir, endurnýjun, frumkvæði og hugmyndaauðgi. Áhersla er lögð á samskipti, bæði við almenning og milli listamannanna sjálfra.
Áhersla er lögð á að verkefnin sem sótt er um styrk til séu vel skilgreind og umsóknirnar vandaðar.
Norrænt
Gerð er krafa um að verkefnin séu Norræn. Litið er á verkefnið sem Norrænt ef það nær til að minnsta kosti tveggja Norðurlanda, það er Íslands, Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Færeyja, Grænlands og Álandseyja. Getur það verið í formi þátttakenda, skipuleggjenda eða sem þema eða vettvangur. Verkefnin mega ná til landa utan Norðurlanda.
Hægt er að fá styrk fyrir tilraunaverkefni, verkefni og undirbúning verkefna.
Hverjir geta sótt um?
Stofnanir, félagasamtök, listamenn og annað fagfólk sem vinnur á sviði menningar og lista. Styrkurinn er fyrir stök eða ný verkefni en er ekki ætlaður verkefnum sem ná yfir þrjú eða fleiri ár. Ekki er hægt að fá styrk vegna verkefna sem þegar eru hafin.
Starfsemi stuðlar að útbreiðslu þekkingar, auknum hæfileikum og þróun.
Þessi hluti styrkir námskeið, smiðjur, málþing, málstofur og önnur þess háttar verkefni sem ætluð eru fagfólki á svið menningar og lista.
Starfsemi sem miðar að framleiðslu og samskiptum.
Þessi hluti styrkir framleiðslu, verkefni og frumkvæði sem eru þess eðlis að vera listræn og menningarleg sem og samskipti milli fagfólks í lista og menningar geiranum og almennings.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Kulturkontakt Nord http://www.kknord.org
Einnig er hægt að hafa samband við Þuríði Helgu á thuridur@nordice.is |