Funda- og ráðstefnuþjónusta Norræna hússins nýtist vel fyrir minni fundi og málstofur sem og fyrir stærri samkomur, allt að 120 manns í sæti í einum sal. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og að laga okkur að þörfum hvers og eins.
Salarkynni og húsbúnaður er með þeim hætti að unnt er að raða honum í samræmi við þarfir hvers og eins. Til að mynda í hefðbundnar sætaraðir, hringi eða skeifur. Hjá Norræna húsinu er hægt að leigja margvíslegan búnað til ráðtstefnu- og fundahalda, til að mynda: Skjávarpa, fartölvur, tússtöflur, hljóðkerfi, hljóðnema og upptökbúnað, myndbandstæki, litskyggnuvél og sjónvarp. |